Garðheimablaðið 2011

Transcription

Garðheimablaðið 2011
Ræktun:
Ávextir og ber
Fjölæringar
Matlaukar
Skreytingar í
veisluna:
Brúðkaup
Fermingar
Útskriftir
Sumargrill
Njóta
garðyrkjunnar
Gísli og Jónína
í Garðheimum
Ræktar yfir
1000 tegundir
Sædís Guðlaugsdóttir
í Gleym-mér-ei
Garðheima
blaðið
Njóta garðyrkjunnar
Gísli og Jónína í
Garðheimum
1. tbl. 2011
Útgefandi: Garðheimar Gróðurvörur ehf.
Ábyrgðarmaður: Gísli Hinrik Sigurðsson
20
Ritstjórar: Jóna Björk Gísladóttir og Jens Sigurðsson
Ljósmyndir: Jóna Björk Gísladóttir
Yfirlestur: Olga B. Gísladóttir
Umbrot: Hamingjusama hindberið
Prentun: Oddi hf.
Annað efni: Helga Jörgensen, Ólöf Erlingsdóttir, Steinunn
Reynisdóttir, Tómas Árni Tómasson og Valborg Einarsdóttir
Efnisyfirlit
2
Berjarækt
38
Fyrirtækjaþjónusta Garðheima
4
Útskriftarveisla
6
Matlaukar
8
Grillveislan
10
Spíran
12
Grillnámskeið Spírunnar
13
Lítill ævintýragarður
14
Ávaxtarækt
Heiðmörk
17
26
Að njóta ávaxtanna
18
Færðum garðinn inn á skrifstofuna
20
Epli, plómur, perur og kirsuber
26
Gleym mér ei
30
Lítill ævintýragarður
Fjölæringar
34
Berjarunnar
38
14
Hindber
40
Jarðaber
41
Brúðkaupssýning
42
Fjölæringar
Veisluleiga Garðheima
46
34
Fermingarsýning
48
Gleym mér ei
Sædís Guðlaugsdóttir
30
Fyrirtækjaþjónusta
Garðheima
!
texti: Jóna Björk Gísladóttir
myndir: Tómas Árni Tómasson
Fyrirtækjaþjónusta Garðheima hefur verið starfrækt frá árinu 2000
við góðan orðstír og eru sífellt fleiri fyrirtæki að bætast í hóp ánægðra
viðskiptavina. Sigurrós Guðmundsdóttir hefur séð um þessa þjónustu
frá upphafi og er því orðin sannkallaður reynslubolti í því að fegra og
bæta umhverfi fyrirtækja. En ekki allir gera sér grein fyrir um hvaða
þjónustu ræðir.
Hvað er það sem fyrirtækjaþjónustan
býður uppá?
Ég tek að mér að sjá um allar grænar þarfir
fyrirtækja og er misjafnt hverjar þær eru.
Til að stikla á stóru býð ég upp á ráðgjöf
varðandi val á plöntum og umsjón með
þeim, sé um áskrift á blómaskreytingum
t.d. í móttökur sem og blómasendingar
og innpakkanir vegna ýmissa tækifæra,
skreytingar fyrir árshátíðir, jól eða önnur
tilefni, umsjón með útisvæðum eða aðrar
tilfallandi þarfi r.
Í hverju felst umsjón með plöntum?
Til að byrja með þá hjálpa ég fólki að
velja plöntur og potta sem henta hverjum
stað fyrir sig. Eftir það veiti ég ráðgjöf
um umhirðu plantnanna eða tek að mér
að sjá um þær, eftir því hvaða þjónustu
fyrirtæki þurfa á að halda. Ég sé um að
mæta á svæðið einu sinni í viku og vökva
plönturnar, gef þeim áburð og sé um að
þær séu ávallt sprækar og fallegar.
Skiptir máli að hafa lifandi plöntur í
fyrirtækjum?
Já vissulega, því plönturnar gera svo
mikið meira en að vera til skrauts.
Venjulegar stofuplöntur geta verið mjög
hjálplegar við að hreinsa eiturefni úr
loftinu. Vísindamenn NASA hafa t.a.m.
stundað rannsóknir á þessu og sýndu
niðurstöðurnar að plöntur hafi mjög
mikla þýðingu fyrir heilbrigt loft hjá
nútíma fyrirtækjum. Betra loft skilar sér
í heilbrigðari starfskröftum og bættum
vinnuafköstum. Einn af okkar stærstu
kúnnum er fyrirtækið CCP sem er
einmitt með mjög stórar skrifstofur. Þeir
leggja mikið uppúr því að hafa lifandi
plöntur í kringum starfsfólk sitt og eru
4
með yfir 100 lifandi plöntur til að tryggja
gott andrúmsloft.
Eru fyrirtæki almennt meðvituð um
þetta?
Þetta er smám saman að koma myndi ég
segja. Sífellt fleiri fyrirtæki eru að skipta
út silkiplöntum fyrir lifandi plöntur
eftir að hafa rekið sig á að rakastigið í
loftinu hefur ekki verið nægilega gott.
Silkiplönturnar eru þá frekar hafðar í
þeim rýmum sem erfitt er að hafa lifandi
plöntur, t.d. í fundarherbergjum og
á dimmum stöðum. Mestu skiptir að
hafa lifandi plöntur nálægt skrifborðum
starfsmanna, helst ein á hverju borði ef
hægt er að koma því við.
Eru einhverjar ákveðnar plöntur betri
en aðrar?
Já samkvæmt niðurstöðum NASA þá eru
eftirfarandi plöntur hvað duglegastar við
að hreinsa óæskileg efni úr loftinu:
Dvergpálmi
Bergflétta
Gerbera
Drekatré
Crýsi
Friðarlilja
En tekurðu að þér umsjón með hverju
sem er á útisvæðum?
Fyrirtæki hafa yfir mjög ólíkum útisvæðum
að ráða og því misjafnt hvaða verk um
ræðir. Ég hef séð um að setja skreytingar
í ker, setja niður og sjá um plöntur og tré,
klippingar, sláttur, uppsetningu á seríum
og fleira í þeim dúr. Ef það kemur upp sú
staða að ég ráði ekki við verkið þá sé ég
um að koma fyrirtækjum í samband við
garðverktaka eða aðra sem geta tekið að
sér viðkomandi verkefni.
H V Í T A H Ú SI Ð/SÍA 11-0705
r
n
HF$6&%)þinn banka
K.%457.1458"$1;#)-$BC-$<$6"#.8"93"
V ið hö f um margt að bj óða þér:
V ið hj á Íslandsbanka leggj um mikinn metnað í að veita góða þjónustu.
!"#$%&''()*$+,&-.%)$+$/0%1-&2334-$%4).5"-$.&*$4)#6&%74$6"#.8"9346"5)*$
:884-$4#$3484$)99%;.34-$+864-#45"-$<$/+-*+%)*=$
D$$E-4*F-.84-457"$-+#'(0@$:'$B(?5).3)=
!"#$%&'(#)*"+,*-&*#+./#0*11*#2(/,(#34#(5")316(4(#3/#78#931654:#
D$$!&-#%4)546&A55$meniga.is sem auðveldar þér að halda heimilisbókhald
$ :'$'&-4$F3'(4%74+G3%45"-=
>:*7)$<$,&"*.?85$:'$-+#'(4@4-$:884-$@4-4$2A-$B4#$,64#$6"#$'&3)*$1:#"#$
BC-$:'$,6&-5"'$B4#$'&5')-$@2-"-$."'$4#$.8"934$)*$6"#.8"93414584=$
D$$HG'"%&'45$5&314584$B4-$.&*$BF$'&3)-$$
$ %&2.3$I&.3$B<5$*+%=
;*"#&<,50#)31#=#0>&*#7?4:
@&(4A+A>1,#B+1(/6+2(/,(#.#C'>66:
D$$JI)'4$6"%74-B(?5).3)$$.&*$)*1)54-$$
$ B&"*$.&*$5;34$.C-$,&"%74-B(?5).3)$$
bankans.
Þarabakki 3 - 109 Reykj av ík
w w w.islandsbanki.is
Sími 440 4000
Útskriftarveisla í þjóðlegum anda
stílisti: Ingibjörg Víðisdóttir
myndir: Jóna Björk Gísladóttir
6
Gaman er að velja þema fyrir skreytingarnar í útskriftarveisluna. Háskólaútskriftir bera oft upp í
kring um þjóðhátíðardaginn, líkt og í tilfelli Karólínu Finnbjörnsdóttur. Því þótti borðleggjandi að
hafa fánalitina í hávegum.
7
texti: Ólöf Erlingsdóttir
og Jóna Björk Gísladóttir
Matlaukar
Þótt matlaukar hafi verið ræktaðir í þúsundir ára, er ekki löng hefð fyrir ræktun
þeirra hérlendis. Undanfarin ár hefur það þó verið að færast í aukana og hefur
ræktun þeirra gefist vel. Sé gætt að réttum ræktunarskilyrðum skila laukar almennt
góðri uppskeru og eiga það meira að segja til að fæla burt óæskileg aðskotadýr
úr grænmetisgarðinum. Matlaukar er flokkaðir í blaðlauka annars vegar, þar sem
eingöngu eru nýttir stönglar og blöð og hnýðislauka hins vegar, sem aðallega er nýttur
vegna lauks neðanjarðar, en stundum blöðin einnig. Þeir eiga það allir sameiginlegt
að vilja frjóan og áburðarríkan jarðveg, vel ræstan, og sólríkan stað.
Blaðlaukar
Graslaukur er fjölær og frekar auðveldur í
ræktun. Blöð hans eru grágræn og hol og nokkuð
bragðmild. Gott er að finna graslauknum
varanlegan stað í útjaðri grænmetisgarðsins, en
einnig má rækta hann í potti. Honum er fjölgað
með skiptingu eða með sáningu í marsmánuði.
Til að koma í veg fyrir að stilkar verði grófir er
gott að klippa hann reglulega og hægja þannig á
blómgun. Þótt blóm hans séu vel æt vilja flestir
frekar blöðin.
Vorlaukur er fjölær þótt við nýtum hann
nánast eingöngu á fyrsta ári hérlendis. Hann
er hraðvaxta og mjög auðveldur í ræktun.
Vorlaukurinn myndar hvíta litla blómlauka og
holan stilk og er hann allur nýttur til ætis. Ef
hann er skilinn eftir í jarðvegi myndar hann
þyrpingar sem hægt er að skipta upp að vori.
Honum er sáð í apríl og þarf 4 vikur í forræktun
við 14-18° c. Hann kýs sólríkan stað, sendinn
og vel framræstan jarðveg þar sem hann þarf
Fróðleikspunktur
um lauka
Laukar eru ekki bara útlitið
og ilmurinn heldur luma þeir
á nokkrum góðum brögðum.
Þeir eru mjög hjálpsamir við
að lækka kólestrólið í blóðinu,
koma hringrásinni af stað, lækka
blóðsykurinn og vinna gegn astma svo
eitthvað sé nefnt.
dýpt til að hvíti hluti hans verði lengri. Hægt er
að fara að nýta hann þegar stilkurinn er orðin
c.a. blýantsbreidd.
Púrrulaukur er harðgerður en þarf góða birtu
og rakaheldinn og áburðarríkan jarðveg. Hann
hefur hvítan, þykkan stilk og breið flöt blöð
og verður c.a. 40 cm á hæð. Honum er fjölgað
með sáningu í febrúar-mars og er forræktaður
inni í 8-10 vikur. Hann vill koma með löng og
mjó blöð og er því gott að klippa tvisvar ofan
af honum í forræktuninni. Við útplöntun er
nauðsynlegt að klippa af rótunum, þannig að
þær séu um 3 cm að lengd. Púrra þarf 15 cm
bil á milli plantna og 30-40 cm milli raða. Ýta
þarf mold upp að stöngli (hreykja að) a.m.k.
tvisvar yfir vaxtartímann til að lengja hvíta hluta
lauksins (bleikja). Með því að bleikja gerum við
stilkinn meyrari.
Hnýðislaukar
Hnýðisla
ý
Matlaukur og rauðlaukur þurfa frjóan og
vel framræstan jjarðveg á sólríkum stað, jafnvel
í vermireit í bbyrjun. Þeim er fjölgað með
sáningu í lok ffebrúar til byrjun mars, ýmist
forræktaður inni eða ræktaður út frá smálaukum
(útsæðislaukum). Laukurinn fjölgar sér ekki
(útsæðislaukum
sjálfur og getur orðið um
heldur stækkar hann
h
þvermál, ca 15-45 cm á hæð, með blöð
10 cm í þvermál
gild og hol að iinnan. Honum er síðan plantað
maí með um 5 cm bili og 25-30
út í ma
cm
c á milli raða. Laukurinn er
settur
efst í moldarlagið svo það
s
glitti í enda. Hægt er að nýta
blöðin á vaxtartíma en passa
þarf að taka þau ekki öll til að
hindra
hin ekki vöxtinn.
Laukurinn
er fullþroska þegar blöð
Laukuri
byrja að visn
visna. Þá þarf að taka hann upp
og þurrka. La
Laukarnir geymast vel þegar
skænisblöð (ystu blöðin) eru orðin þurr og er
þá óhætt að setja hann í geymslu við 0-7°C og
lágt rakastig.
Skalotlaukur er frábrugðinn matlauk í ræktun.
Hann myndar allt að 10 smálauka í kringum
sig á vaxtarskeiðinu. Honum er fjölgað með
8
Laukauppskrift
Ferskir nýtýndir laukar eru alveg
himneskir á grillið.
1. Fjarlægið ysta lagið, skerið ofan
af toppnum og í kross ofan í hálfan
laukinn. 2. Setjið laukinn í álpappír
með vænni smjörklípu ofaná, smá salt
og pipar og lokið að.
3. Grillið þar til laukarnir eru orðnir
mjúkir.
sáningu í lok febrúar til byrjun mars eða
ræktaður út frá útsæðislauk. Honum er plantað
út í maí og þarf að hylja hann með um 4 cm
þykku moldarlagi. Hæfilegt bil fyrir skalotlauk
er 15 cm á milli plantna og 30 cm á milli raða.
Eins og matlaukur er hann tilbúinn þegar blöð
fara að visna og gulna. Þá er hann tekinn upp og
þurrkaður. Athugið að skalotlaukur þolir ekki
að frjósa.
Hvítlaukur samanstendur af mörgum hnýðum.
Honum er fjölgað með því að setja hnýði (geira)
um 5 cm í jörðu mjög snemma vors eða að
hausti og er þá skilinn eftir yfir veturinn. Þroski
hans og vöxtur stjórnast af hitastigi. Hitastig
undir undir 0°c kemur honum í vetrardvala og
myndar hann þá ný rif. Hitastig undir 7°c kemur
svo rótarkerfinu af stað. Til að mynda mörg
hnýði þarf hann helst að vera amk 2 mánuði
í jörðu við hitastig undir 7°c. Þegar blaðendar
byrja að gulna er kominn tími til að uppskera
laukinn. Ef hann bíður of lengi er hætta á að
skænisblöðin (ystu blöðin) eyðileggist.
Hvítlaukurinn er geymdur með því að þurrka
hann. Þá eru blöðin fléttuð saman og hann
látinn hanga á þurrum stað.
Nýtt grill frá Weber
-Spirit E 310 Premium
- mikið úrval af aukahlutum
Söluaðilar.:
Járn og Gler hf
-
Garðheimar
www.weber.is
- Húsasmiðjan
stílistar: Ingibjörg Víðisdóttir og Salbjörg Bjarnadóttir
myndir: Jóna Björk Gísladóttir
Grillveislan...
Hentugt er að geta staflað
garðstólunum.
"
Þegar veður leyfir er ekkert skemmtilegra
en að halda grillveisluna undir berum
himni!
Citronella-kertin sjá um að
halda flugunum frá.
Ferskar kryddjurtir eru bæði
fallegt og girnilegt borðskraut.
Hengitóbakshorn
Lugtir skýla eldinum fyrir
veðri og vindum
10
Afskornar gerberur
Tvíburaspori
Salatplöntur geta verið
fallegar í pottum
Sólboði
"
Hosta
Pottar og plöntur í öllum stærðum og gerðum
skapa grænu stemninguna á hvaða palli sem er!
Sólboði
Hengitóbakshorn - Million bells
11
Spíran
Í júní 2010 varð langþráður draumur að veruleika þegar Garðheimar teygðu
anga sína upp á aðra hæðina og bistro staðurinn Spíran opnaði. Hugsunin með
Spírunni var að hún myndi þjóna sem rúsínan í pylsuendanum á ánægjulegri
heimsókn í Garðheimum eða kærkomin hvíld frá amstri dagsins. Þar gæti
fólk sest niður í þægilegu andrúmslofti, fengið sér hressandi kaffibolla eða
orkuríkan hádegisverð og gluggað í fræðsluritin sem þar er að finna, hvort
sem það er ræktunar-, hönnunar- eða næringarfróðleikur sem hugurinn
þyrstir í.
Hamingja í áskrift!
Spíran sendir hádegismat til fyrirtækja
eða hópa, bæði daglega og ákveðna daga
í viku eða eftir hentisemi.
Hægt er að velja um rétt dagsins, salat
dagsins, súpu dagsins eða spírulokur
Matseðillinn okkar er mjög breytilegur
en við pössum alltaf uppá að hann
uppfylli skilyrðin okkar um að gleðja
bragðlaukana, seðja svanga maga, næra
líkamann, gefa orku út vinnudaginn
Nánari upplýsingar um matseðilinn
er hægt að nálgast á www.spiran.is
eða með því að senda fyrirspurninr á
netfangið [email protected]
12
Spíran leggur mikla áherslu á næringarinnihald, ferskleika og bragðgæði
matarins og býður upp á skemmtilega fróðleikspunkta tengda matnum og
næringargildi hans. Í anda Garðheima er þar einnig mikið lagt upp úr því að
bjóða upp á mat ræktaðan og framleiddan af íslenskum aðilum og sem mest
verslað beint frá bónda. Á sumrin eru aðföngin sótt í nærumhverfið þar sem
salat, kryddjurtir, grænmeti og ber eru ræktuð á Garðheimalóðinni.
Spíran er opin alla daga frá 11:00 til 17:00
Grillnámskeið Spirunnar
Hinrik Carl Ellertsson matreiðslumaður er yfirkokkur Spírunnar. Hann er maður
margra bragða og leynitakta hvort sem er í eldhúsinu eða á grillinu. Nú í vor
ætlar Hinrik að deila vitneskjunni með áhugasömum þar sem hann mun vera
leiðbeinandi á Grillnámskeiðum Garðheima og Weber. Þar munu þátttakendur
eiga fyrir höndum skemmtilega kvöldstund þar sem farið verður í undirbúning á
mismunandi hráefni, marineringar, hitastillingar, tímaviðmið, muninn á gas- og
kolagrilli og allt það sem þarf að vera á hreinu til að ná fullkomnum árangri á
grillinu. Í lok námskeiðsins verður svo slegið til veislu þar sem grilltæknin verður
sannprófuð.
Hvers konar hráefni munt þú taka fyrir?
Það er tvískipt, annars vegar verða það pizzur
og stórsteikur sem þarfnast smá meiri tækni á
grillinu en kótilettur, eins t.a.m. nautaribeye
og svínarif. Hins vegar kjúklingur og
sjávarfang eins og t.a.m. þorskur í bananalaufi
og fleira spennandi. Einnig mun ég taka fyrir
grænmeti eins og ferskan maís ofl. sem margir
veigra sér við að grilla.
Er námskeiðið fyrir hvern sem er eða
aðeins fyrir óreynda grillara?
Námskeiðið er hugsað jafnt fyrir vana sem og
óvana grillara, það eiga allir að læra eitthvað
nýtt.
Hvað græða reyndir grillarar á
námskeiðinu?
Djúpan fróðleik, af hverju mistökin geta
orðið á grillinu, meðhöndlun hráefnisins
fyrir og eftir grillun, smá eðlis- og efnafræði
á bakvið hegðun kjötsins á grillinu og fleira
í þá áttina.
Þurfa þáttakendur að eiga gott grill heima
til að græða á námskeiðinu?
Ég verð með tækni sem ætti að nýtast á hvaða
grilli sem er, en auðvitað er fylgni á milli gæða
grillsins og því hve öruggur þú ert með að
maturinn heppnist vel.
Mælir þú sérstaklega með Weber grillum,
hafa þau eitthvað framyfir önnur grill?
Já ég mæli hiklaust með Weber þar sem járnið
í þeim er sérstaklega gott og hönnunin öll,
sem verður til þess að hitinn flæðir jafnt um
grillið og maturinn brennur síður. Þá er mjög
auðvelt að stjórna hitanum á Weber grillum,
hvort sem um ræðir kola- eða gasgrill.
Hvað finnst þér skemmtilegast að grilla?
Svínarif, ég eyði gjarnan góðum tíma í að
undirbúa svínarif alveg frá grunni og elska
bæði að grilla þau og borða þau. Svo hef
ég mjög gaman af áskoruninni við að grilla
stórar óhefðbundnar steikur eins og t.d. heilt
lamb og stóra nautavöðva.
Hvaða áherslur eru í þinni matreiðslu?
Að nota ferskt og gott hráefni og vita hvaðan
það kemur.
Geturðu nefnt eitthvað eitt lykilatriði við
að vera góður grillari?
Yfirvegun og þolinmæði.
Geturðu deilt með okkur einni góðri
uppskrift að lokum?
Ég ætla að deila með ykkur einni góðri
uppskrift af nautaribeye sem ég tek einmitt
fyrir á námskeiðinu.
Kaffi-chillihjúpað
nauta ribeye
2 tsk ristuð cumin fræ
2 msk espresso baunir
1 msk chiliduft
1 msk paprikuduft
1 tsk sjávarsalt
1 tsk nýmalaður pipar
Allt sett í kaffikvörn eða Mulinex vél og
blandað þar til verður að dufti.
800gr nauta ribeye
Salt og pipar eftir smekk.
Ólífuolía
Aðferð:
Kjötið penslað með olíu og síðan
kryddblöndunni og látið standa við
stofuhita í u.þ.b. 20 til 30 mínútur
áður en grillað er.
Skráning á námskeiðin
Opið er fyrir skráningar á
námskeið sem haldin verða
14.apríl, 28. apríl og 19. maí, en
einnig er boðið uppá sérnámskeið
fyrir hópa sem telja 12 manns eða
fleiri.
Skráningar má senda á netfangið
[email protected]. Nánari
upplýsingar um grillnámskeiðin
má
nálgast
á
heimasíðu
Garðheima: www.gardheimar.is
13
stílisti: Jóhanna Gunnheiðardóttir
myndir: Jóna Björk Gísladóttir
Lítill ævintýragarður
Í litlum bakgarði í Hafnafirði
hefur tekist að skapa dásamlegt
umhverfi til að njóta íslenska
sumarsins. Um er að ræða c.a.
50 fm skika þar sem gömul
hellulögn liggur upp við húsið
og mjó grasrönd stendur við
enda hennar. Á þessum litla
skika er verið að rækta ótrúlega
margt sem sannar að oft þarf
ekki mikið meira en nokkrar
plöntur og smá hugmyndauðgi
til að skapa ævintýralega
garðstemningu.
!
Fyllt hengitóbakshorn
og stjúpur
Huggulegt fjölskylduhorn
14
#
Kertaljós fyrir stillt
sumarkvöld
Ein og ein stjúpa
stingur sér upp á milli
sígrænu plantnanna
Fuglabaðið dregur líf í garðinn
Hortensía
Afdrep fyrir bestu vinina!
Salatplöntur taka sig vel út í fallegum steinkerjum
Blaðsalat
15
Lítill
ævintýragarður
#
Hostur og pelargoniur mynda fallegt par
Mikið af fallegum steinastyttum
setja svip sinn á garðinn
Hortensíur og tvíburaspori
16
Silfurkambur og fyllt tóbakshorn
Heiðmörk
$
vinsælt útivistarsvæði og viðarvinnsla
í jaðri höfuðborgarinnar
Fjölsóttasta útivistarsvæði landsins er
Heiðmörk í útjaðri Reykjavíkur, en
þangað koma hundruð þúsunda gesta á
hverju ári og fer sífellt fjölgandi.
Skógræktafélag Reykjavíkur hefur frá því
svæðið var opnað árið 1950 haft umsjón
með skipulagi og öllum framkvæmdum þar.
Elliðavatnið er vinsælt veiðivatn sem dregur
marga til sín frá vori fram á haust og sífellt
er verið að bæta og fjölga áningarstöðum
og göngustígum inni í Heiðmörkinni, ekki
síst í elsta hlutanum. Töluverð umsvif eru
á aðventunni þegar Jólaskógurinn opnar í
Hjalladal og Jólamarkaðurinn Elliðavatni
er starfræktur við miklar vinsældir fjórar
helgar fyrir jólin. Vinnuflokkur á vegum
félagsins starfar allan ársins hring auk þess
sem mikill fjöldi ungmenna og sjálfboðaliða
kemur til liðs við félagið á sumrin, mikið
er gróðursett og umhirðurþátturinn fer
eðlilega vaxandi.
eftir kurli og bolviði hjá félaginu. Sala
á skógarafurðum er Skógræktarfélaginu
mikils virði sem tekjuöflun til reksturs
Heiðmerkur. Félagið horfir til þess að
vinnsla á viði fari vaxandi í Heiðmörkinni
á næstu árum og áratugum og hvetur
borgarbúa og aðra til að hafa samband og
leita frekari upplýsinga og tilboða á efniviði
úr hinum reykvíska skógi í Heiðmörk.
Grisjunarþörfin í skógum Heiðmerkur er
mikil eins og kunnugt er og með grisjuninni
fellur til meiri og meiri viður sem nýttur er
á margvíslegan hátt. Mest er unnið og selt
sem eldiviður og einnig er mikil eftirspurn
Verið velkomin í
Viðarvinnsluna í Heiðmörk!
Trjákurl
Eldiviður
Bolviður
ur
í stórsekkjum og pokum
og Fánastangir
í mörgum lengdum
í grindum og pokum
m
Allur viður unninn úr skógum Heiðmerkur
Elliðavatn | sími 564 1770 | www.heidmork.is
ur
fæst keypt hjá okk
og í Garðheimum 17
Garður félagsmanns í Mosfellsbæ.
Að njóta
ávaxtanna
Ljósm. Kristleifur Guðbjörnsson.
Valborg Einarsdóttir framkvæmdastjóri
Garðyrkjufélags Íslands skrifar
Snyrtilegur og aðgegngilegur matjurtagarður, mynd tekin í lok maí.
Girnilegar plómur ´Violetta´, mynd tekin í ágúst á Suðurlandi.
18
Áhugafólk um garðyrkju veit manna best að garðyrkja stuðlar
að hollri útiveru og hreyfingu, en garðyrkjan er einnig skapandi
áhugamál sem nærir bæði líkama og sál. Uppskeran er því
ekki eingöngu mæld í kílóum af lífrænt ræktuðu grænmeti,
berjum og ávöxtum heldur er gleðilegasta uppskeran ekki síst
sú ánægja sem garðurinn veitir okkur. Árangurinn af fegrun
umhverfisins og skjólið sem trén og runnarnir veita okkur,
er ekki einungist notalegt fyrir mannfólkið, því skjólið er
tækifæri til ræktunar á ýmsum viðkvæmari og meira spennandi
tegundum. Mikil vakning hefur verið í alls konar ræktun
undanfarin ár, ekki síst ræktun á ýmsum nýjum tegundum
sem engan óraði fyrir að hægt væri að rækta hér á landi. Má
þar nefna ýmsa skrautrunna, framandi matjurtir og nú síðast
ávaxtatré.
Félagsmenn Garðyrkjufélags Íslands fylgjast vel með og margir
vinna frábært brautryðjendastarf í ræktunartilraunum. Nýjasta
tilraun á vegum félagsins er ávaxtatrjáaræktun. Vonandi
eiga niðurstöður þeirrar tilraunar eftir að koma sér vel fyrir
komandi kynslóðir. Vafalítið kemur það ýmsum á óvart, en
Garðyrkjufélag Íslands er eitt elsta áhugamannafélag landsins,
stofnað árið 1885. Alla tíð hefur markmið félagsins verið að
auka og efla áhuga á garðyrkju í landinu. Hefur því verið fylgt
eftir með veglegri útgáfu Garðyrkjuritins sem félagar fá árlega.
Félagið heldur úti öflugri heimasíðu www.gardurinn.is með
fréttum af félagsstarfi og fróðleik um allt er lýtur að garðyrkju.
Heimasíða félagsins er einnig vettvangur skoðanaskipta meðal
félagsmanna og þar geta nýir félagar skráð sig í félagið. Kostir
þess að vera félagsmaður eru margvíslegir. Plöntuskiptadagur
á vorin hefur verið vinsæll dagur um land allt, skipulagðar
eru garðagöngur, garðaskoðanir, fræðslufundir og námskeið.
Árlega er í boði frælisti með um 1000 tegundum sem
félagar hafa safnað sjálfir. Farið er í skipulagðar fræðslu- og
skoðanaferðir bæði innanlands og utan. Innan félagsins eru
starfræktir eftirtaldir klúbbar: rósaklúbbur, matjurtaklúbbur,
sumarhúsaklúbbur, blómaskreytingaklúbbur og sá allra
nýjasti er ávaxtaklúbburinn. Þá er eru deildir félagsins
starfandi á landsbyggðinni. Félagsskírteini veitir afslátt hjá
garðplöntusölum og ýmsum öðrum fyrirtækjum. Það er því
fljótt að borga sig að vera félagi.
Yngri félagsmenn læra af þeim sem eldri eru og reyndari,
þannig miðlast þekkingin milli kynslóða og fræið sem til var
sáð verður að plöntu og fær að stækka og dafna.
%&
Vermieer Trjákurlari
tekur allt að 30 cm trjáboli
Mjög afkastamikið tæki | notað af skógræktarfélögum og
Garðyrkjuverktökum
Einnig er hægt að leigja
leigja tækið
tækiðtiltileinstaklinga
einstaklinga
með
með
manni
manni
» þarf ekki að farga og flytja trjáboli
» tækið mylur
mylur tréð
tréðí íkurl
kurlsem
semhægt
hægt
er er
aðað
nota
nota
í í tjábeð og stígagerð
stígagerð
Alstor
útkeyrsluvagn fyrir skógrækt
Hentugur fyrir þröngar
þröngar aðstæður
aðstæðurtiltilathafna
athafna
í skóglendi
í skóglendi
Kjörinn til stígagerða og
og efnisflutninga
efnisflutningaí viðkvæmu
í viðkvæmu
gróðurlendi
gróðurlendi
Tækjaleiga Garðheima
gerðu garðinn frægan!
Tækjaleiga Garðheima býður frábært úrval af
tækjum sem létta ykkur störfin: við snyrtingu
lóða, jarðvegsframkvæmdir, viðgerðir eða
málningarvinnu. Við leigjum aðeins út tæki
í fyrsta flokks ástandi. Tækin okkar eru
afkastamikil og auðveld í stjórnun.
Við bjóðum fjölbreytt úrval af: smágröfum,
kerrum,
beltavögnum,
keðjusögum,
hekkklippum, stauraborum, sláttuvélum,
steinsögum, mosatæturum, hæðamælum,
fleygum, sand- og saltdreifurum auk ýmissa
annarra tækja.
skoða
tala
skrifa
Beltadrifin sláttuvél
Laski stubbatætarar
Til í ýmsum stærðum bæði til sölu og
leigu. Mokar upp stubbana og rótarkerfið
án þess að raska umhverfinu. Hægt er að
sjá tækið vinna á www.laski.cz
Timan RC 750: beltadrifin, öflug sláttuvél notuð
í allt að 58 gráðu halla. Hægt er að skipta út
hnífum og nota hana líka í grófu undirlandi.
Sjá nánar á: www.timan.dk
Beltavagar
Úrval smátækja
Sjáðu meira um Tækjaleigu Garðheima á
www.gardheimar.is/taeki
Beinir símar eru
864 3325 & 893 8424
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á
netfangið: [email protected]
Smágröfur
Steinsagir
Kurlarar
Sláttuvélar
Við erum hér
Garðheimar aðalbygging
Afgreiðslutími
Tækjaleigu Garðheima
09.00 - 18.00 virka daga
10.00 - 17.00 laugardaga
10.00 - 16.00 sunnudaga
Stauraborar
Tækjaleigan
er
hér
Sláttuorf
Kerrur sem bera
Við leigjum kerrur í sérflokki
sérstaklega styrktar og henta
vel til flutnings á sandi, grús,
mold ofl.
Keðjusagir
texti: Jens Sigurðsson
myndir: Jóna Björk Gísladóttir
Færðum garðinn inn á
skrifstofuna
Gísli og Jónína í Garðheimum sótt heim
Í hálfa öld hafa hjónin Jónína S. Lárusdóttir og Gísli H.
Sigurðsson verið á kafi í garðyrkju. Þau hafa yndi af því að
vera saman úti undir berum himni og rækta fjölbreyttar
og fágætar tegundir sér til ánægju og yndisauka. Fyrir
þeim er garðyrkjan sjálfsagður og nauðsynlegur þáttur í
lífinu. Fyrir 20 árum urðu vatnaskil hjá þeim þegar þau
festu kaup á Verzlun Sölufélags Garðyrkjumanna og
áhugamálið varð að lífsviðurværinu.
Við settumst niður með þeim hjónum síðasta sumar,
spjölluðum við þau um ræktunaráhugann, skoðuðum
garðinn þeirra og spurðum þau um áhugasvið og áherslur
þeirra í garðyrkjunni og líka hvort þau lumi á einhverjum
ráðum og leynibrögðum fyrir okkur hin?
20
21
Áhuginn kviknar
Við byrjuðum á að forvitnast um hvenær
áhugi þeirra á garðyrkju hafi kviknað og
hvað hafi valdið því? „Það má eiginlega
segja að ég hafi fæðst inn í þennan heim“
segir Gísli. „Við æskuheimili mitt í Hrísey
var mikil matjurtarækt. Þar ræktuðum við
fjölskyldan algenga hluti eins og grænkál,
rófur og kartöflur. Síðan vorum við líka
með nokkuð myndarlega jarðaberjaræktun,
þótt hún hafi nú verið með aðeins öðrum
hætti en við þekkjum í dag. Þá var hver
planta strengd upp á vír í glerkassa og
samviskusamlega séð um að klippa afleggjara
og óþarfa blöð svo hvað mest orka færi í
berin sjálf. Þetta þótti framandi í þá daga og
við vorum þau einu í eynni sem reyndum
við jarðaberin.“ segir Gísli og bendir á að
það hafi fylgt móðurættinni sinni, Schiöth
ættinni, mikil gróðurmenning alla tíð en
hún var meðal frumkvöðla við stofnun
Lystigarðsins á Akureyri.
Jónína ólst upp í ævintýralegu húsi við
Hverfisgötuna í Hafnarfirði en það var þó
ekki þar sem garðáhuginn vaknaði. „Áhugi
minn á ræktun kviknaði í kartöflugörðunum
með pabba, undir Ásfjalli, en þar áttum við
spildu og kofa. Í þá daga var ekkert verið
að setja fyrir sig að það væri enginn bíll til
á heimilinu og það væri klukkutíma ganga
þar uppeftir.“ segir Jónína. „Ég lagði metnað
minn í að hjálpa honum að setja niður og
taka upp kartöflur, sjá um grænmetið og
hirða rabarbarann. Við tókum líka frá
útsæði til næsta árs, sultuðum og gerðum
sem mest úr þessu sem við gátum.“ bætir
Jónína við og talar um að í þá daga var
litið á ræktunina meira sem búdrýgindi en
áhugamál.
Sjálfsagður hluti af heimilishaldinu
Jónína segir þau hjónin hafa fengist við
einhvers konar ræktun allan sinn búskap
og verið með gróðurhús við öll sín heimili.
Gísli í hindberjaskóginum sínum!
22
"
Gísli og Jónína
hafa ræktað
grænmeti og ávexti í
gróðurhúsinu sínu í
mörg ár með góðum
árangri.
Vínviðurinn er
t.a.m. orðinn 25 ára
og gefur alltaf vel
af sér.
Þá eru gúrkur og
tómatar fastagestir
en nýjasta viðbótin
er perutréð sem er
eftir nokkurra ára
dvöl farið að gefa
hraustlega af sér.
„Okkur hefur alltaf þótt þetta sjálfsagður
hluti af heimilishaldinu. Á þeim tíma
sem við reistum okkar fyrsta gróðurhús á
Ölduslóðinni í Hafnarfirði var Gísli með
dellu fyrir Dalíum og tókst ræktun þeirra
rosalega vel upp. Ég man að ég var svo
sérstaklega heilluð af einu blómi að ég
málaði mynd eftir því.“ segir Jónína og
heldur áfram. „Þar vorum við líka með
myndarlegan grænmetisgarð þar sem við
ræktuðum m.a. belgbaunir við miklar
vinsældir. Á ég sérlega sterkar minningar
þaðan af krökkunum að opna belgina og
týna upp í sig.“
„Við höfum alla tíð verið að rækta jarðaber
og tekið sama yrkið með okkur á milli
heimila en á síðustu árum hefur færst í vöxt
hjá okkur að vera meira með berjarunna, eins
og hindber, ekki síst út af barnabörnunum
sem hafa voðalega gaman af að koma í
heimsókn og næla sér í nokkur ber.“ segir
Gísli og nefnir að skilyrði til ræktunar
hafi breyst mikið á síðustu árum. „það er
kominn upp svo mikill gróður í landinu.
Sígrænu trén hafa vaxið upp í byggð og
skapað skjól sem var ekki á þessum tíma.
Ég man að maður var í stöðugum barningi
við vindinn á Ölduslóðinni sem stóð í
berskjaldaðri hlíð. Þar vorum við stöðugt
í því að rækta upp limgerði til að mynda
skjól og ræktunarskilyrði.“
Þora að prófa sig áfram
“Kjarkinn til að þora að prófa sig áfram í
garðyrkjunni segir Jónína þau hafa lært í
gegnum Garðyrkjufélagið. „Við gengum
í Garðyrkjufélag Íslands skömmu eftir að
við giftum okkur, um 1967 og erum því
búin að vera meðlimir þar í ein 45 ár. Þar
kynntist maður dellufólki sem ýtti undir
áhugann á því að prófa sig áfram í ræktun.
Maður var alveg hissa á því hvað fólk gat
ræktað þegar á þessum árum.“ segir Jónína.
Við fórum að skoða garða hjá fólki sem
var ómenntað í þessum fræðum eins og
við en náði alveg ótrúlegum árangri bara
með því að prófa sig áfram.“ Þá bætir Gísli
við. „Við erum búin að prófa okkur áfram
t.a.m. með ýmsa ávexti sem við höfum þá
ræktað upp frá fræi við misgóðan árangur.
Maður verður að vera óhræddur við að
prófa. Stundum tekst vel til og stundum
ekki, þannig á framþróunin sér stað. Á
þessum árum heyrðist mikið að ákveðnir
hlutir myndu aldrei þrífast á Íslandi og
var því mikil hvatning og innblástur að
hitta þessa frumkvöðla.“ segir Jónína og
eru þau hjónin sammála um að þetta hafi
mótað afstöðu þeirra til vöruinnkaupa í
Garðheimum. „Við lögðum á það áherslu
frá fyrsta degi að koma með nýja hluti í
sölu og fengum á okkur nokkra gagnrýni
í byrjun. Margir sögðu að eitt og annað
sem við vorum að prófa að koma með,
myndi aldrei þrífast við íslenskar aðstæður.
Líklega hefur reynslan sýnt að við höfðum
rétt fyrir okkur því maður heyrir þessar
gagnrýnisraddir ekki í dag.“ segir Gísli.
Allir geta ræktað
Þau hjónin hvetja fólk endilega til að prófa
sig áfram í ræktun óháð aðstöðu, sérstaklega
með mat- og kryddjurtir. „Þeir sem eru með
svalir eða góða eldhúsglugga geta líka verið
að rækta. Við höfum verið að einbeita okkur
að því í Garðheimum að auka framboð af
vörum fyrir þesskonar ræktun.“ segir Gísli.
„Fólk sem hefur lítið pláss getur alveg
ræktað gulrætur og hvaðeina í svalakössum.
Það þarf bara að passa sig að setja ekki of
mikið. Ég hef líka gert það og forræktað
gulrætur í svalakössum til að fá uppskeru
fyrr. Þá flyt ég þær yfir í í stórum kögglum
og reyni ekkert að eiga við einstaka plöntur,
þá eiga það þær til að verða kræklóttar.“
segir Gísli og bendir fólki sérstaklega á að
nota vatnskristalla í potta- og kerjaræktun
„þeir eru mjög sniðugir. Þessir kristallar
eru eins og lítil grjón sem draga í sig raka
og þegar fer að þorna í moldinni skilar
kristallinn raka aftur út í jarðveginn og
temprar þannig ræktunina.“
Jónína: „Mér finnst
skemmtilegast að vera úti í
garðinum mínum á góðum
sumardegi, hlusta á þytinn í
trjánum, horfa í kringum mig og
bara njóta þess að vera til.“
Garðurinn sem hluti af stofunni
„Eitt af því sem við vildum leggja áherslu á
þegar við vorum að byrja með Garðheima
var að líta á garðinn sem hluta af heimilinu.
Bæði að færa garðinn inn í stofu sem og
stofuna út í garð, þannig að litið væri á
garðinn sem aðra stofu. Það finnst mér
hafa tekist virkilega vel og er tíðarandinn
í dag allt annar en þegar við vorum að
byrja. Pallamenningin og skjólið sem
hefur myndast í görðum á síðustu árum
hefur hjálpað mjög við þessa hugsun.“ segir
Gísli.
„Mér er svo minnistætt þegar við vorum að
hugsa um að flytja hingað, þá vorum við
að undirbúa afmælisveislu dætra okkar sem
halda átti í garðinum okkar í Hafnarfirði.
Það var frekar sjaldgæft á þeim árum að
halda veislur utandyra en okkur fannst
svo gaman að gera eitthvað svona úti í
garðinum. Þar vorum við hins vegar alltaf
að stríða við rokið og því var það skjólið
og veðursældin sem heillaði okkur fyrst
við þetta hús sem við búum í núna. Það
snýr beint á móti sólinni og stendur þannig
að það skýlir vel helstu vindáttum hérna
í Fossvogsdalnum. Við hugsuðum strax
um það hvernig væri að haldið veislur hér
í garðinum og hvernig við gætum tengt
garðinn stofunni.“ segir Jónina og segir
það hafa verið þeirra fyrsta verk eftir að þau
fluttu að huga að garðinum.
Þróun garðsins
Þau hjónin hafa í dag nokkuð skýra
verkaskiptingu í garðinum sem hefur
þróast í áranna rás. „Já ég hef miklu meira
gaman af því að rækta það sem maður getur
borðað, matjurtir, ber, ávexti og þessháttar.“
segir Gísli. Og mér finnst gaman að rækta
það sem er fallegt!“ bætir Jónína við og
hlær. Gísli segir að verkaskiptingin hafi
orðið meiri eftir að þau losuðu sig við
limgerðin. „þegar við vorum að koma
okkur upp skjóli vorum við með hátt og
mikið limgerði umhverfis garðinn. Undir
það síðasta var það orðin nokkur kvöð að
„Okkur finnst mjög þægilegt að hafa fyrsta
salat sumarsins í góðum pottum. Þá getur
maður byrjað fyrr og tekið það inn ef það
er von á næturfrosti eða vondu veðri. Það
er líka hentugt við matseldina að hafa potta
í eldhúsglugganum sem maður getur teygt
sig í eftir þörfum.“ bætir Jónína við.
Íris / Bretalilja
Japönsk bóndarós
Dornrós
23
"
hlusta á þytinn í trjánum, horfa í kringum
mig og bara njóta þess að vera til.“
Jarðaberjaplönturnar hafa fylgt þeim frá
fyrstu búskaparárunum og vaxa með miklum
myndarskap á nokkrum stöðum í garðinum,
enda barnabörnin sólgin í þau!
24
Gísli byrjar að forrækta salatplönturnar sínar í
febrúar og njóta þau hjónin þess að borða ferskt
og nýræktað salat frá því snemma í maí fram til
loka september.
sjá um það. Það var því mikil bylting fyrir
okkur að losna við það. Þá var skjólið í
garðinum og hverfinu orðið þannig að við
gátum einbeitt okkur að áhugasviðunum.
Tré með stórri krónu brjóta mikið vindinn,
sem og stakir runnar.“ segir Gísli og bendir
fólki á að huga vel að því hverskonar trjám
það planti í garðinn sinn. „Það þarf að vara
sig á að vera ekki með of stór tré á lóðum.
Öspin er dæmi um tré sem við eigum ekki
að vera með í heimilisgörðum. Hún er
þó mjög fín og brúkleg á stórum opnum
svæðum þar sem þarf að brjóta vind. Í dag
eigum við kost á að velja úr mun meira af
fíngerðari og falllegri trjám og runnum sem
við höfðum ekki hugmyndaflug til að rækta
hér fyrir nokkrum árum síðan.“ „Við erum
búinn að fella mikið af stórum trjám og
færa til plöntur. Þetta höfum við gert hægt
og rólega á þessum rúmlega 30 árum sem
við erum búin að vera hérna. Garðurinn
þróast með manni og í takt við tímann sem
maður hefur til að sinna honum.“ segir
Jónína.
og sinni en lítum alls ekki á sem einhverja
kvöð.“ segir Gísli. „Við reynum líka að
njóta garðsins og erum alls ekki alltaf að
puða. Við höfum svo markvisst minnkað
grasið og sett áhugaverðar plöntur í staðin
sem þarfnast minni umhirðu. Við reynum
að stýra þessu þannig að það fari ekki
allt í hers hendur ef við höfum ekki tíma
til að sinna garðinum. „Við nýtum líka
svalirnar útaf stofunni okkar til að setjast
út og fá okkur að borða. Þær eru að hluta
yfirbyggðar þannig að við getum setið þar
óháð veðrum og vindum. Þar grillar Gísli
líka allan ársins hring“ segir Jónína stolt af
sínum manni. Þá eru þau hjónin sammála
um hvað það sé sem garðyrkjan gefi þeim.
„Ætli það sé ekki einna helst lífsfylling. Ég
get alveg týnt mér í garðverkunum og það
verður oft til þess að maður verður latur að
fara á stjá og hitta fólk á góðum dögum, því
maður bara tímir ekki að fara úr garðinum
sínum.“ segir Gísli og þau viðurkenna að
það togist stundum á við sumarbústaðinn
hvað þau eru heimakær.
Njótum garðsins
Garðyrkjan er svo sannarlega stór hluti af
lífi þeirra hjóna en þrátt fyrir að þau starfi
við áhugamálið er áhuginn enn mikill
þegar kemur að þeirra eigin garði. „Gísli
kemur heim í hádeginu á hverjum degi
og lítur eftir plöntunum í gróðurhúsinu,
hvort þær þurfi vatn eða aðhlynningu.
Svo erum við líka mjög dugleg að fara út í
garð strax eftir vinnu ef veður leyfir.“ segir
Jónína. „Þetta gerum við meira fyrir sál
Það er alltaf eitthvað í gangi í garði
þeirra hjóna, en hvaða tími þykir þeim
skemmtilegastur? „Ég hef mjög gaman af
uppskerutímanum, þegar ég fer að sjá fyrstu
berin. Fyrst sé ég vísa í bláber í gróðurhúsinu,
svo jarðaber, síðan hindber og loks vínber.
Þannig að þetta kemur svona hvert af öðru
frá júní fram í nóvember.“ segir Gísli. „Ég
nýt mjög hughrifanna við garðinn“ segir
Jónína. „Mér finnst skemmtilegast að vera
úti í garðinum mínum á góðum sumardegi,
Í garðyrkjubransann
En hvernig atvikaðist það að þau hjónin
gerðu garðyrkjuna að lífsviðurværi? „Það
vildi þannig til að kunningi minn sem var
nýkominn til landsins og byrjaður í vinnu
fyrir Sölufélag Garðyrkjumanna, setti
sig í samband við mig. Á þeim tíma var
rekstur Sölufélagsins nánast á hausnum og
eitt af því sem þeim hugnaðist til að rétta
reksturinn við var að selja aðfangadeildina
(Verslun Sölufélags Garðyrkjumanna).
Þarna sáum við tækifæri til að fara að vinna
við áhugamálið. Á þessum tíma var ég að
vinna sem rekstrarstjóri Stöðvar 2 og þegar
ég tilkynnti þeim þessa fyrirætlan mína
hélt fólk að ég væri genginn af göflunum.
En við sáum mikil tækifæri í rekstrinum
og frá fyrstu stundu fórum við að vinna
markvisst að draumnum um Garðheima.
Við ferðuðumst mikið um Evrópu á
þessum árum og skoðuðum hvernig
Garden Center væru uppbyggð og fórum
að móta með okkur hvernig við vildum
byggja okkar rekstur.“ segir Gísli en í ár eru
20 ár liðin frá því að þau keyptu Verslun
Sölufélagsins.
Garðheimar
Það hefur greinilega farið mikil vinna
í tilurð Garðheima sem nú eru orðnir
rúmlega 10 ára. Finnst ykkur á þessum
tíma hafa tekist að gera Garden Center
eins og ykkur dreymdi um? „Já ég myndi
segja það. Garðheimar eru síbreytilegir,
þróast í takt við tímana og reyna að
höfða til fólks óháð árferði.“ segir Gísli.
„Okkur hefur líka tekist að koma upp
góðri fyrirtækjamenningu í Garðheimum.
Starfsfólkið okkar er jákvætt, hefur góða
Enskar pelargóníur
"
þjónustulund og er umhugað um að hjálpa
okkur að láta fólki líða vel í búðinni okkar.
Við erum líka þakklát fyrir að börnin okkar
hafa sótt í að vinna með okkur. Þau hafa
öll fjögur mjög ólíkan bakgrunn sem hefur
reynst okkur vel í rekstrinum.“ segir Jónína
sem nefnir að þau séu einnig mjög þakklát
fyrir hvað fólk hefur enst lengi í vinnu hjá
þeim og hve lykilstarfsmenn Garðheima
séu með langan starfsaldur.
Hvernig lítið þið til fyrirtækisins í dag. Eru
Garðheimar fullkláraðir eða eru einhver
verkefni eftir? „jájájá alltaf mikið eftir. Við
ætlum okkur í nánustu framtíð að yfirbyggja
gönguleiðir á útisvæðinu okkar þannig
að viðskiptavinirnir geti ferðast betur um
svæðið óháð veðri. Svo dreymir okkur um
að geta líka fært hluta af veitingareksturinn
okkar á Spírunni út undir bert loft. Ég
held það verði alltaf hægt að koma með
einhverjar nýjungar. Gillnámskeiðin sem
haldin verða nú í vor eru gott dæmi um það.
Garðheimar eru hálfgerð verslunarmiðstöð
eða lífsstílsvettvangur.“ segir Gísli og telur
að svalaræktun og berja- og ávaxtarækt verði
mjög vinsæl á næstunni. „Ég held t.d. að fólk
eigi eftir að demba sér í hindberjaræktun
í meira mæli. Þau eru svo skemmtileg og
henta vel til geymslu og frystingar. Svo er
það önnur ávaxtaræktunin, eins og epli,
perur og plómur. Ég ætla t.d. að setja
eplatré í sumarbústaðarlandið í sumar og er
mjög spenntur að halda áfram að prófa mig
áfram í því.“
„Fólk sér hag í að rækta og við erum líka að
koma til móts við fólk með að bjóða meira
af hlutum til útleigu. Við höfum rekið
tækjaleigu, þar sem fólk getur leigt stór og
smá garðvinnutæki. Nú ætlum við einnig að
endurvekja brúðar- og veisluleiguna okkar“
segir Jónína og bætir við að „í fyrra var svo
framkvæmdur draumurinn um veitingaog kaffihús sem er búið að vera í bígerð öll
þessi ár. Bretar eru mjög hrifnir af því að
sækja Garden Center um helgar og margir
líta á þessa staði meira sem veitingahús.
Fólki líður vel innan um gróður, hann
hefur svo góð áhrif á líkama og sál. Og ekki
skemmir nú fyrir að geta notið góðs matar í
leiðinni.“ segja þau hjónin að lokum.
Svo erum við líka
mjög dugleg að fara út í garð strax
eftir vinnu ef veður leyfir.“ segir
Jónína. „Þetta gerum við meira
fyrir sál og sinni en lítum alls ekki á
sem einhverja kvöð.“ segir Gísli.
25
"
texti: Jens Sigurðsson
myndir: Jóna Björk Gísladóttir
Epli, plómur, perur og
kirsuber
Þú getur ræktað þín eigin
„Býfl ugan getur ekki flogið. Eða svo segja lögmál eðlisfræðinnar. Það er bara
enginn búinn að láta blessuðu fluguna vita. Það sama mætti í raun segja um
ávaxtarækt á Íslandi“ Með þessum orðum hóf Henrik Jensen fyrirlestur sinn um
ræktun, umhirðu og uppskeru aldintrjáa. Henrik er sérfræðingur í slíkri ræktun
og rekur eigin aldinekru við Fjón í Danmörku. Hann undrast að Íslendingar
flytji inn epli frá Kína og Bandaríkjunum og vildi vekja okkur til umhugsunar
um hið ómögulega: að einn daginn gætum við verið sjálfum okkur nóg um epli
og aðra ávexti.
Hvað
svo
sem
digurbarkalegum
yfirlýsingum lætur er víst að allar aðstæður
til ræktunar á Íslandi hafa breyst mjög til
batnaðar á síðustu áratugum. Sumir vilja
halda því fram að höfuðborgarsvæðið sé
stærsti skógur Íslands. Hér hefur myndast
mikið skjól, samhliða hlýnandi veðurfari.
Á síðustu árum hefur aldinrækt færst mjög
í vöxt í heimagörðum. Framboð af góðum
yrkjum til ræktunar eykst ár frá ári og
landinn er almennt duglegri og áræðnari
við að prófa nýjar, framandi plöntur í
garðinn sinn.
Hér á eftir er farið í gegnum nokkrar
grunnstoðir aldintrjáaræktunar. Að miklu
leyti er stuðst við upplýsingar frá námskeiði
Henriks við Endurmenntunarstofnun
Landbúnaðarháskólans á Reykjum 21. og
22. mars síðastliðinn.
Skjól og staðsetning (Epli, plómur,
perur, kirsuber)
Í upphafi er mjög mikilvægt að huga að skjóli
í garðinum. Ávaxtatré eiga ekki möguleika
á að mynda aldin ef þau eru í stöðugum
26
barningi við vindinn. Tré, limgerði og
skjólveggir skapa umhverfi þar sem aldintré
þrífast. Í skjólinu skapast staðbundið
veðurfar sem er oft nokkrum gráðum heitara
en mælingar Veðurstofunnar segja til um.
Þessi viðbótarhiti er mikilvægur þroska og
vexti epla-, peru-, plómu og kirsuberjatrjáa.
Það er því lykilatriði að velja trénu góðan
stað, bæði bjartan og heitan.
Margir bregða á það ráð að hafa aldintrén
sín upp við húsvegg móti Suðri. Með því
fær tréð gott skjól og hita frá húsinu. Við
þessar aðstæður er líklegt að tréð blómgist
5-6 dögum fyrr en tré sem standa utar
í garðinum. Hins vegar þarf að hafa í
huga, að því fyrr sem trén blómgast, því
berskjaldaðri eru þau gegn næturfrosti sem
getur aftur skemmt blómgunina. Því er
mikilvægt að skýla þeim á vorin ef von er
á köldu veðri.
Val á plöntum (Epli, plómur, perur,
kirsuber)
Öll aldintré sem seld eru á Íslandi eru á
ágræddum stofni. Þetta þýðir að þú ert í
raun að kaupa tvær plöntur, tréð sjálft og
síðan grunnstofn hennar. Hingað til lands
koma tré á grunnstofnum sem þola vel frost
og umhleypinga. Yrkin sem grædd eru á
grunnstofnana eru oftast búin að sanna sig
á norðlægum slóðum og koma mestmegnis
frá Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi
og Kanada. Við viljum velja tegundir sem
hafa stuttan tíma milli blómgunar og
aldinmyndunar.
Þegar farið er að stað að velja sjálft tréð er
mikilvægt að velja sér hraustlegt og gott
eintak. Við viljum helst kaupa að minnsta
kosti tveggja ára gamalt tré þar sem þau
gefa okkur von um uppskeru á öðru sumri.
Ársgömul tré taka sér oftast lengri tíma og er
þá ekki að vænta uppskeru fyrr en eftir 4 til
6 ár. Ráðlegt er að spyrja garðyrkjufræðing
um aldur trjánna þegar þau eru keypt og
biðja um aðstoð við val á réttri plöntu.
Gott er að líta eftir trjám með hraustan og
heilbrigðan stofn og sem hafa helst fleiri
en fimm hliðargreinar. Þeim mun fleiri
hliðargreinar því betra.
Gróðursetning (Epli, plómur, perur,
kirsuber)
Þegar heim er komið og tréð gróðursett er
mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvar
ágræðslupunktur trésins er. Þetta er nokkuð
auðvelt að sjá, en tréð bólgnar aðeins út
á þeim punkti neðarlega á stofninum.
Þegar trénu er komið í mold er mikilvægt
að ágræðslupunkturinn sé ofanjarðar og
standi helst 10 til 20 cm uppúr. Það er til
"
Blómstur á eplatré
að forða trénu sjálfu frá því að
komast í snertingu við mold og
sem gæti orðið til þess að það fari
að skjóta rótum. Með því breytist eðli
trésins og við missum stjórn á eiginleikum
plöntunnar.
Almennt eru aldintré ekki
sjálffrjóvgandi. Því þarf tvö tré til
að aldin myndist og við þurfum oft
að hjálpa þeim við æxlun.
Stögun (Epli, plómur, perur, kirsuber)
Þótt trénu hafi verið valinn skjólgóður staður mót suðri
er alltaf gott að staga tréð af, sérstaklega fyrstu árin meðan
það rótar sig og stofninn gildnar. Með því að staga tréð
er verið að minnka enn frekar áhrif vinda og tryggja að
sem mest orka fari í aldinmyndun. Við stögun þarf að
hafa hugfast að ágræðslupunkturinn er veikasti staður
trésins og oft brotna tré einmitt þar. Þegar tréð er stagað
skal forðast að setja álag nálægt þeim punkti. Helst þarf
að velja tvo staði á trénu við stögun, hafa annan um ‹
fjarlægðar frá jörðu og hinn um ‹ frá toppi trésins.
Klipping (Epli og plómur)
Við klippingu á aldintrjám er meginatriði að hleypa sem
mestri birtu í gegnum tréð. Við viljum að allar greinar
(og þá öll aldin) njóti sólarinnar til jafns. Allar okkar
aðgerðir miða að því að mynda sem flest blómbrum og
þroska hliðargreinarnar svo þær myndi blóm. Gott er
að halda einum hraustum sprota efst á trénu sem togar
næringuna upp í gegnum allar greinar trésins. Jafnframt
viljum við halda trénu fremur grönnu svo það taki síður
á sig vind. Helst viljum við ekki að hliðargreinar séu
þykkari en sem nemur þriðjungi af þykkt stofnsins.
Þær klippum við inn að stofni en aðrar greinar sem
við viljum snyrta til eru klipptar við brum sem vísa
út frá trénu. Við reynum að skilja um þrjú til fjögur
brum eftir á grein sem við viljum halda. Við það ættu
að myndast ein til tvær greinar sem og blómsprotar.
Þá ber að varast greinar sem vaxa upp með aðalstofni
og geta farið í samkeppni við toppinn. Þær ættum við
sömuleiðis að fjarlægja.
Blómstur á kirsuberjatré
Blómstur á perutré
Húðvörurnar frá
Urtasmiðjunni eru unnar
úr heilnæmum jurtum og
vottuðu lífrænu hráefni
Vörurnar fást í heilsuog náttúruvöruverslunum
Nánar á
urtasmidjan.is
Klipping (perur)
Við klippingu á perutrjám gilda svipuð lögmál. Við
viljum þó eingöngu halda greinum með meira en 60
gráðu horni. Aðrar greinar farlægjum við, því þær hætta
að vaxa og mynda engin blómbrum.
Urtasmiðjan Svalbarðsströnd | sími 462 4769
27
Ávaxtatré í
Garðheimum
2011
Epli, plómur, perur og kirsuber
Hér á eftir er listi yfir þau aldintré sem
verða til sölu í Garðheimum vorið
2011.
Eplatré
Malus domestica ´Röd Haugmann‘
Malus domestica ´Röd Sävstaholm‘
Malus sylvestris ´Aroma´
Malus sylvestris ´Guldborg´
Malus sylvestris ´Katja‘
Malus sylvestris ´Lobo´
Malus sylvestris ´Skogfroged´
Malus sylvestris ´Summerred´
Malus sylvestris ´Transparent Blanche´
Malus sylvestris ´Eva Lotta´
Malus sylvestris ´Alice´
Perur
Pyrus communis ´Conference´
Pyrus communis ´Clara Frijs´
Plómur
Prunus domestica ´Czar´
Prunus domestica ´Opal´
Prunus domestica ´Victoria´
Kirsuber
Prunus avium ´Stella´
Prunus avium ´Sunburst´
Prunus avium ´Lapins´
28
Klipping (kirsuber)
Kirsuberjatré hafa svipaða greinasetningu og
perutré. Við viljum klippa um þriðjung af
hliðargreinum ár hvert og hafa um 60cm á milli
greinahópa.
Frjóvgun og aldinmyndun
Almennt eru aldintré ekki sjálffrjóvgandi. Því þarf
tvö tré til að aldin myndist og við þurfum oft að
hjálpa þeim við æxlun. Býflugan sem hjálpar til við
frjóvgun í heitari löndum er sjaldan komin á kreik
hérlendis þegar trén eru í blóma. Við getum borið
frjó á milli trjáa með litlum pensli eða eyrnapinna.
Við tökum úr blómi annars trésins og færum yfir í
blóm hins trésins.
Ef tréð blómstrar óvenju mikið og þú telur það á
leið með að mynda fleiri aldin en það getur borið,
er best að grisja blómin eða aldinvísana sem fyrst.
Við viljum forða trénu frá því að eyða óþarfa orku.
Sum tré vita sín takmörk og hvað þau ná að þroska
af aldinum og henda af sjálf af sér blómunum. Á
sama tíma byrja þau að mynda blómbrum fyrir
næsta ár.
Áburðagjöf
Gott er að gefa aldintrjám Blákorn á vorin áður en
þau eru að hefja blómgun, en alls ekki seinna en á
Jónsmessu. Hæfilegt magn af Blákorni er um 25
til 40 g fyrir hverja plöntu. Mikilvægt er að gæta
vel að skammtastærðinni og gefa ekki of mikið
Blákorn því þá fer of mikil orka í blaðvöxtinn í
stað þess að þroska aldin. Í Blákorninu er þó lítið
kalí sem er plöntunni mikilvægt fyrir aldinþroska.
Því getur verið gott að gefa einnig Kalísúlfat með
Blákorninu.
Nýtt í Garðheimum
Nú getur þú ræktað sveppi í eldhúsinu!
Frá og með miðjum maí verður hægt að
fá í Garðheimum skemmtilega nýjung í
eldhúsræktunina: sveppi!
Nú er hægt að bera á borð heimaræktaða
sveppi í salöt, súpur eða hvað annað sem þig
listir.
Það er sáraeinfalt að rækta sveppina og vænta
má uppskeru á annari viku.
Hægt er að velja um: venjulega hvíta sveppi,
brúnsvepp, Shiitake sveppi og ostru-sveppi!
Heiðmörk 38 | 810 Hveragerði | Sími 483 4800 | Fax 483 4005 | www.ingibjorg.is | [email protected]
texti og myndir : Jóna Björk Gísladóttir
$
Gleym mér ei
grænir fingur Sædísar Guðlaugsdóttur í Borgarnesi
Í útjaðri Borgarness, í skjóli
myndarlegra
trjáa
hefur
Sædís
Guðlaugsdóttir garðyrkjufræðingur,
með aðstoð ættingja og góðra vina,
byggt upp myndarlega ræktunaraðstöðu
sem telur orðið þrjú hús og um 1100
tegundir plantna. Um er að ræða
garðyrkjustöðina Gleym mér ei, sem
liggur skammt frá erli þjóðvegs 1, en
á svæðinu ríkir þessi einstaka ró sem
einungis gróðrinum er fært að skapa. Í
einu horninu sé ég glitta í leiksvæði með
trampolíni og á móti mér koma hænur
vaggandi sem undirstrika afslappað og
heimilislegt andrúmsloftið sem ríkir á
svæðinu.
30
Garðyrkjustöðin Gleym mér ei fagnar
25 ára starfsafmæli sínu nú í ár, en hún
opnaði dyr sínar þann 1. júlí 1986.
Frá upphafi hefur Sædís haldið dagbók
yfir starfsemina og hljómar fyrsta
dagbókarfærslan þannig: „Jæja, þá er
loksins skrifað undir langþráð blað. Það
er að segja leigusamning við hreppinn
um landið frá Pétri frá Kárastöðum. Svo
er nú er bara að bíða eftir þinglýsingu
og þá er hægt að hefja vinnuna.“ „Þá var
liðið rúmlega ár frá því að ég byrjaði að
sækja um, en ég var svo ung að þeir höfðu
enga trú á því að ég gæti þetta.“ segir
Sædís stolt í bragði, enda aldeilis búin
að þagga niður allar efasemdarraddir.
„Ég ákvað það 12 ára að opna mína
eigin garðyrkjustöð og kvikaði aldrei
út frá þeirri ákvörðun.“ Árið 1982
útskrifast hún úr Garðyrkjuskólanum
og byrjar strax að leggja drög að opnun
garðyrkjustöðvarinnar. Eftir nokkurra
ára vinnu hjá Gróðrastöðinni Mörk og
meira nám í Danmörku sótti hún um
vinnu hjá Borgarneshreppi. „Þeir vildu
ekki fastráða mig en höfðu áhuga á því að
ráða mig sem verktaka til að sjá um grænu
svæðin í bænum. Síðastliðin 27 ár hef
ég því séð um Skallagrímsgarðinn, allar
gróðursetningar og blómabeð í bænum,
úðað og gert allt sem gera þarf. Það
Helluhnoðri
Tóbakshorn og
Snædrífa
Skógarmalva
má því segja að ég hafi haft yfirumsjón
með grænu útliti bæjarins og þróun
garðyrkjunnar yfirhöfuð þar sem ég hef
einnig verið í bakhöndinni hjá flestum
fyrirtækjum bæjarins.“ segir Sædís.
Sædís hefur því horft uppá bæinn breytast
mjög mikið, sem og viðhorf almennings
til ræktunar. „Í dag er bærinn orðinn
mjög gróinn og fallegur og er ég búin
að ná að pota plöntum allsstaðar sem
hægt er. Mér finnst ég því eiga mikið í
bænum og er mjög annt um þau svæði
sem ég hef byggt upp. Það er líka mikill
áhugi í dag hjá almenningi í Borgarnesi
Kínavöndur
„Það
þurfa allir að eiga
fleiri Nellikur, þær eru svo
æðislegar“
á því að rækta og er
ég stolt af því að hafa
hjálpað til við að stuðla að
því. Hér er mikið af fallegum
görðum sem renna saman við umhverfið
og mynda fallega heild. Náttúran flæðir
svo oft inná lóðamörkin hjá fólki,
þannig að bæjarbúar lenda oft í því að
taka í fóstur kletta og annað sem kann
að liggja að lóðinni þeirra.“ segir Sædís
stolt í bragði.
Á garðyrkjustöðinni er Sædís með um
1100 tegundir í ræktun og er sá lager
orðinn nokkuð stabíll og gróinn. Hún
leggur mesta áherslu á fjölæringana en
er líka með sumarblóm og eitthvað af
trjáplöntum í boði. „Ég er alltaf með
sama grunninn en reyni nú alltaf að sá
einhverjum nýjum tegundum líka. Ég
skoða mikið fræbæklinga og tala svo við
Nellika
garðyrkjufræðingana
í Garðheimum og í
listigarðinum á Akureyri
til að fá hugmyndir af nýjum plöntum
til að prófa. Ég sái oft fyrir um 50-60
nýjum tegundum á ári, en út úr því
koma oft ekki nema kannski 2 tegundir
sem eru söluhæfar. Reglan er að plantan
verður að lifa hjá mér í 2 ár áður en ég
get boðið uppá hana. Flestar tegundir
reyni ég við allavega tvisvar og er ég
t.a.m. núna að prófa nokkrar tegundir
sem ég prófaði fyrir 10 árum síðan og
eru sumar að virka mun betur núna.“
segir Sædís og telur ástæðuna fyrir því
vera bæði meiri reynsla af hennar hálfu
sem og bættara tíðarfar. „Eins tek ég við
fræjum sem fólk hefur orðið sér úti um
og reyni að koma upp plöntu. Oft eru
þetta fræ sem hafa ekki verið ræktuð hér
á landi áður og hafa því engin íslensk
nöfn. Til að mynda kom til mín kona
að nafni Laufey með fræ af kvisti sem
hafði ekki verið áður ræktaður á Íslandi
og kom ég honum til fyrir hana. Hann
er nú kominn í sölu hjá mér og heitir
Laufeyjarkvistur“ segir Sædís glöð í
bragði.
Aðspurð um kosti fjölæringa segir Sædís
þá hafa það framyfir sumarblómin að
þeir komi alltaf upp á hverju sumri og
hafi það framyfir kvistina að þeir detti
alveg niður yfir veturinn. Þá ráðleggur
31
hún fólki að gróðursetja mikið skriðula fjölæringa eins
og t.a.m. Dögglingskvist í botnlausar tunnur til að halda
þeim í skefjum. „Fjölæringa er best að setja niður á vorin
eða fyrri part sumars til að þeir séu búnir að koma sér
vel fyrir þegar veturinn skellur á.“ segir Sædís og segir
það jafnframt skipta miklu máli að vökva allar plöntur
sem keyptar eru um leið og komið er með þær heim.
“Þær eiga það til að hitna og þorna leiðinni í bílnum,
sérstaklega þegar það er heitt úti og sól. Eins á helst að
setja plönturnar niður samdægurs. Ef það þarf hins vegar
að geyma þær í einhverja daga þarf að passa að setja þær í
var þannig að þær sólbakist ekki.“
En það er alger synd hvað fólk kaupir lítið miðsumars
og haustblómstrandi fjölæringa“ segir Sædís. „Fólk vill
yfirleitt alltaf kaupa það sem er í blóma hverju sinn og þar
sem flestir koma fyrri part sumars verða þeir fjölæringar
sem blómstra seinni partinn mikið út undan. Sumir
eru auðvitað búnir að pæla þetta út og velja vandlega
samsetningar fjölæringa í garðinn. Það eru auðvitað lang
fallegustu garðarnir, þar sem eitt tekur við af öðru og
alltaf eitthvað í blóma.“ Sem dæmi um skemmtilega
fjölæringa sem verða út undan nefnir Sædís Vendi, t.a.m.
Kínavönd og svo Nellikur. “Það þurfa allir að eiga fleiri
Nellikur, þær eru svo æðislegar. Eins finnst mér lyklarnir
alltaf voða skemmtilegir þar sem þeir koma upp einna
fyrstir á vorin og eiga það svo til að koma aftur á haustin
á góðum sumrum. Eins er ég búin að finna gott afbrigði
af Lavender sem lifir af íslenska veturinn. Ég ætla að spá
því að það verði næsta tískufyrirbrigðið í ræktun.“
Þegar horft er um liðinn veg er Sædís sátt við sitt. “Það
sem þessi 25 ár skilja fyrst og fremst eftir sig
Sædís
mælir með því
að plönturnar séu
alltaf vökvaðar um leið
og heim er komið þar
sem þær eiga það til að
hitna og þorna í
bílnum
Sædís
er búin að finna gott afbrigði
af Lavender sem lifir af íslenska
veturinn og spáir því að það verði næsta
tískufyrirbrigðið í ræktun
Lavender
32
Ég lofaði Maxie að hugsa
vel um heilsu hans og
hamingju allt lífið.
CATHERINE
NÆRINGARÞRÓUNARSTJÓRI PRO PLAN
HÖFUNDUR AÐ PRO PLAN PRO BIFIDUS
Axlar ábyrgð eins og þú.
OPTI START fyrir hvolpa
Með broddi, fyrstu móðurmjólkinni,
sem staðfest er að eflir ónæmiskerfið.
PRO BIFIDUS fyrir fullvaxna hunda
Eykur magn bifidus-baktería í maganum
og kemur þannig jafnvægi á meltinguna.
ANTI AGE fyrir roskna hunda
Staðfest að eykur árvekni og
andlega snerpu.
Þetta er þín ábyrgð.
Þetta er okkar ábyrgð.
Þetta er PRO PLAN.
Fjölæringar
Miðsumars- og haustblómstrandi
Skriðklukka
Er harðger, stórvaxin og mjög skriðul planta
sem þrífst best í frjóum og rökum jarðvegi.
Blómin eru fallega lillabláar klukkur sem
lúta niður af 60-100 cm stönglum. Hún
stendur í blóma í ágúst og september og
hentar vel í stór engi eða svæði þar sem
henni er frjálst að breiða úr sér.
texti og myndir : Jóna Björk Gísladóttir
34
Malva
Er falleg planta sem þrífst best á sólríkum stað í næringarríkri
mold. Blöðin eru smágerð en blómin stór og falleg, ýmist bleik
eða hvít á lit og standa í stuttum þéttum klösum upp af c.a. 60
cm stönglum. Hún stendur í blóma í júlí og ágúst.
Laugadrottning
Er harðger og blómsæl planta sem stendur
í blóma frá júlí - september. Blöðin eru
grágræn og striklaga og mynda þétta
brúska. Fjöðruð blómin standa á um 1030 cm stönglum, geta verið ýmist fyllt eða
einföld, eru mjög ilmrík og yfirleitt bleik
eða rauð á lit.
Fagurhjálmur
Er harðger og myndarleg garðplanta sem þarf frjóan
jarðveg en þolir vel að standa í skugga. Hann er um 100120 cm á hæð og blómstrar tvílitum baunalaga blómum í
júlí - ágúst.
Glæsihnoðri
Er harðger og falleg þekjuplanta sem er nokkuð fljót að
dreifa sér. Blöðin eru jarðlæg og fagurgræn og standa
bleikrauð blómin upp á 30-50 cm stilkum. Hún þrífst best
á sólríkum stað í þurrum og rýrum jarðvegi.
35
Grágresi
Er mjög blómsæl planta sem stendur í
blóma frá lokum júní og fram á haust.
Stilkarnir eru um 15-20 cm háir og bera
fallega bleik blóm með rauðum æðum.
Hún er harðger og þrífst best í þurrum og
sendnum jarðvegi eins og í steinhæðum.
Garðableikja
Er harðger og nægjusöm planta sem
þrífst best í rökum jarðvegi. Blöð hennar
eru nokkuð stór en blómin mörg og smá
og vaxa þétt upp á c.a. 60 cm háum,
sterkum stönglum. Hún stendur í blóma
í júlí - ágúst.
36
Urðahnoðri
Er smágerður og jarðlægur og minnir oft á mosabreiður. Blöðin eru
fagurgræn en verða rauðleit ef hann er á mjög þurrum stað. Hann blómstrar
litlum, hvítum, stjörnulaga blómum í júlí - ágúst. Stönglarnir standa um
5-8 cm upp úr breiðunni og er hann mjög fljótur að dreifa úr sér.
Kínavöndur
Er kuldaþolin og skriðul planta sem myndar fljótt
lágvaxnar breiður. Blöðin eru mjó og sveigð en
blómin, fagurblá og klukkulaga, vísa beint upp í
loftið á um 10-15 cm stönglum. Kínavöndurinn
blómgast mjög seint en stendur oft í blóma út
október. Þá lokast blómin í dimmviðri en opna sig
aftur þegar birtir til.
Smæra (Ione Hecker)
Er lágvaxin planta (oft um 10 cm há) sem
myndar einskonar þúfu. Blöðin eru smá,
en vaxa þétt og blómstra stórum fallegum
blómum. Hún er nokkuð harðger og
hefur gefist ágætlega í steinabeðum.
Smáklukka
Er harðger og mjög skriðul planta sem þrífst best á frjóum
og rökum stað. Blöðin eru smágerð, fagurgræn og hjartalaga
og standa stönglarnir um 5-15 cm upp úr blaðbreiðunni.
Blómin standa eitt á hverjum stilk og eru bláleit, klukkulaga
og lúta niður á við. Hún er mjög blómsæl og stendur í
blóma í júlí og ágúst.
Stjörnublaðka
Er blómsæl og sólelsk planta sem þrífst best á þurrum
stað. Laufblöð hennar eru nokkuð stór, bylgjótt og mynda
fallegar blaðhvirfingar. Uppúr þeim standa allt að 30 cm
háir blómstönglar sem skarta mörgum blómum sem geta
myndað einskonar blómhvelfingu þegar vel tekst til. Hún
stendur í blóma í maí og júní en á það til að blómstra
aftur síðsumars þegar best lætur.
Rósablaðka
Er
með
jarðlæga
blaðhvirfingu með stórum
egglaga blöðum. Blómin
eru stór og falleg og standa
oft 2-3 saman á c.a. 10
cm löngum stilkum.
Rósablaðkan er ágætlega
harðger og stendur í blóma
í júní og júlí.
Blóðgresi
Er lágvaxin (stilkar 10-20 cm háir) og dálítið skriðul
planta sem blómstrar myndarlegum bleikum
blómum seinnihluta júlí og ágúst. Hún er nokkuð
skuggþolin og þrífst best í þurrum og sendnum
jarðvegi og er því tilvalin í steinhæðir.
Steinahnoðri
Er jarðlæg og mjög skriðul þekjuplanta. Hún skartar
sterkbleikum stjörnulaga blómum sem standa á c.a. 10 cm
háum stönglum og stendur í blóma frá júlí - sept. Er mjög
algeng í steinabeðum.
37
Rifsber
Sólber
Stikilsber
Berjarunnar
texti og myndir : Jóna Björk Gísladóttir
Sólberja-, rifsberja- og stikilsberjarunnar
hafa verið ræktaðir í öðrum hverjum
garði á Íslandi í áraraðir og er það
ekki furða. Þeir eru mjög auðveldir
í ræktun, mynda gott skjól fyrir t.d.
matjurtaræktun og svo gefa þeir flestir
af sér ríkulega uppskeru á hverju ári. Þá
eru þeir yfirleitt garðinum til mikillar
prýði og ætli maður sér ekki að nýta
berin þá laða þeir mikið fuglalíf í
garðinn.
Vilji maður vernda uppskeruna frá
fuglunum eru til sérstök fuglanet sem
hægt er að setja yfir runnana á meðan
berin eru að þroskast. Þá er mikilvægt að
taka uppskeruna tímanlega af runnunum.
38
Ætli maður að nota berin til að sulta er
gott að týna þau áður en þau fullþroskast
og passa að taka stilkana og jafnvel nokkur
laufblöð með svo sultan hlaupi vel.
Berjarunnar gefa mesta uppskeru á greinar
sem eru innan við 5 ára gamlar. Þess
vegna getur verið gott að klippa burtu
gamlar greinar til að hámarka uppskeruna.
Með því að grisja kemst meiri birta að
greinunum sem eftir eru og verða berin
stærri og fleiri. Eins ef það eru einhverjar
greinar sem liggja alveg við jörðina er
æskilegt að fjarlægja þær. Bæði nýtast
berin ekki eins vel þar sem þau verða oft
skítug og kramin og svo eiga greinarnar til
að skjóta rótum og dreifa þannig úr sér.
Eigi runnarnir fyrst og fremst að mynda
limgerði er óhætt að snyrta þá vel til. Þá er
best að klippa berjarunnana til á haustin
eða veturna, áður en safinn fer að renna út
í greinarnar.
Berjarunna er í raun hægt að setja niður
hvar sem er en þrífast þó best í skjóli og
á sólríkum stað eiga þeir að skila góðri
uppskeru. Þá er einnig gott að gefa þeim
áburð að vori til, t.d. Blákorn eða lífrænan
áburð og passa að þeir ofþorni ekki. Þegar
nýjar plöntur eru settar niður er gott að
hafa um 2 metra á milli þeirra eigi þeir að
fá að njóta sín, en um 0.8 - 1 meter eigi
þeir að mynda limgerði.
Sólberja- og rifsberjahlaup
1/2 kg sólber með stilkum
1/2 kg rifsber með stilkum
800 g sykur
Allt sett saman í pott og soðið í c.a. 10
mín við vægan hita þar til berin eru
sprungin. Ágætt er að kremja berin aðeins
með kartöflustöppu til að ná sem mestum
safa. Sigtað að vild og sett á sótthreinsaðar
krukkur.
Stikils- og jarðarberjasulta
700 gr græn stikilsber
500 gr jarðarber
1 dl vatn,
800 gr sykur
Setjið stikilsber ásamt vatni í pott og komið
sjóðið varlega í 3 mín. Bætið sykri við
og sjóðið í 5 mín til viðbótar. Bætið loks
jarðaberjum útí og sjóðið í c.a. 7 mín eða
þangað til sultan er tilbúin. Passið að hræra
varlega ef þið viljið að berin séu nokkuð
heil. Fleytið ofan af og hellið sultunni í
sótthreinsaðar krukkur.
39
texti og myndir : Jóna Björk Gísladóttir
„Hindber gefa
einungis ávöxt á
annars árs sprota“
Hindber
Hindberjaplöntur eru tiltölulega ný sjón í íslenskum görðum, en eru
auðveldari í ræktun en margan grunar, að því gefnu að gott yrki sé
valið. Víða erlendis eru hindber þekkt sem hálfgerð plága þar sem þau
geta verið ansi dugleg við að dreifa sér. Íslendingar hafa hins vegar
verið heldur ragir við að treysta þeim í íslenskar aðstæður. Nú er komin
nokkurra ára reynsla á flest þau yrki sem seld eru í Garðheimum og
hafa þau staðið sig vel. Í þeim görðum sem góð hindberjayrki hafa náð
að koma sér vel fyrir hér á landi hefur uppskeran verið ansi ríkuleg.
Plönturnar gera kröfu um vel valinn stað í garðinum, sólríkan og skjólgóðan.
Þau gera minni kröfur til jarðvegsins en þó er gott að blanda lífrænum
áburði saman við moldina áður en þau eru gróðursett og passa að vökva, sé
mikill þurrkur úti. Misjafnt er eftir yrkjum hversu háar og umfangsmiklar
plönturnar verða, en flestar eru um 2 metrar á hæð eða jafnvel hærri. Því er
nauðsynlegt að veita þeim stuðning, þannig að þær leggist ekki niður. Það
er hægt að gera á nokkra vegu, t.a.m. með því að styðja við hverja plöntu,
stinga staurum niður á hverju horni og bandspotta í kringum svæðið, setja
vírgirðingu eða nota önnur tiltæk ráð sem henta hverjum stað fyrir sig.
Hindberjaplöntur fjölga sér með rótarskotum, en rótakerfið nær þó ekki
lengra en um 15 cm ofan í jörðina. Því getur verið gott að setja einhvers konar
skilrúm 15-20 cm ofan í jörðina í kringum það svæði sem hindberin eiga að
fá undir sig, til að halda rótarskotunum á réttum stað. Það má t.d. gera með
plastbeðkanti eða með því að smíða kassa utanum hindberjaræktunina.
Annars er hætta á að plönturnar skjóti sér yfir í næstu beð eða jafnvel ennþá
lengra. Mjög mikilvægt er að halda vel utan um rótarskotin vilji maður að
plönturnar fjölgi sér. Þá gefa hindberjaplöntur einungis ávöxt á annars árs
sprota og eru því í sífelldri endurnýjun. Þegar sprotarnir eru búnir að gefa
af sér ávexti á haustin er gott að klippa þá niður, en passa þarf að fjarlægja
ekki ræturnar þannig að nýir sprotar geti vaxið upp frá þeim sem gefa síðan
ávöxt ári síðar. Hindberin eru mjög fljót að dreifa sér, en gera má ráð fyrir
að það taki nokkur ár að koma ræktuninni það vel af stað að hún gefi mikið
af sér. Algengt er að settar séu niður 3-4 plöntur í upphafi ræktunar með
um 50 cm millibili, sem ætti að verða orðið að myndarlegri þyrpingu eftir
4 ár eða svo.
40
Berjauppskeruterta
Botn:
200 gr marsipan
200 gr smjör
200 gr sykur
3 stk egg
100 gr hveiti
0,5 tsk lyftiduft
börkur af einu lime
1-2 msk lime safi
1 tsk vanilludropar
1. Smjör og sykur hrært saman, marsipan rifið fínt niður
og bætt út í. Hrært þar til allt er vel blandað.
2. Eggjum bætt útí, einu í einu og hrært vel saman.
3. Limebörkur rifinn fínt niður og settur saman við
ásamt lime safanum og vanilludropum.
4. Þurrefnum blandað saman við og hrært þar til deigið
lítur út fyrir að vera orðið létt í sér.
5. Bakað við 160° í 30-40 mín.
0,5 líter af rjóma þeyttur og settur ofan á kökuna þegar
hún er orðin köld.
Þar ofan á er berjauppskerunni úr garðinum raðað að
vild.
Jarðaber, hindber, rifsber, bláber, vínber eða hvað sem
fyrir finnst.
r
'
„Fuglar
eru sólgnir í jarðaber.
Hér vaka athugul augu yfir
uppskerunni“
Jarðaber
Jarðaberjarækt þarf vart að kynna fyrir íslenskum
ræktendum, enda hafa jarðaber verið ræktuð hér
í áratugi með góðum árangri. Jarðaber eru mjög
einföld í ræktun og nægjusöm sem gerir það að
verkum að hver sem er ætti að geta ræktað þau,
óháð því hvort garður sé til staðar eða ei. Jarðaber
er hægt að rækta á ýmsa vegu s.s. í pottum, kerjum,
hengikörfum, gróðurreitum, inni í gróðurhúsi eða úti
í beði. Það sem mestu skiptir er að þau séu á sæmilega
skjólgóðum stað og fái góða sól og vökvun. Þá eru
jarðaberjaplöntur sérstaklega viðkvæmar fyrir því að
þorna fyrstu vikurnar eftir að þær eru settar niður og
svo aftur þegar berin eru að myndast. Athuga þarf
að passa sérlega vel uppá vökvunina séu plönturnar
hafðar í kerjum eða grunnum jarðvegi.
Algengt er að jarðaberjaplöntur byrji að gefa af sér um
miðjan júlí, en því hlýrra sem loftið er, því fyrr koma
berin. Þar af leiðandi er nokkuð vinsælt að reyna að flýta
fyrir uppskerunni með því að breiða t.d. akrýldúk yfir.
Hann heldur hita að plöntunum en hleypir samt vatninu
í gegn. Hann hjálpar einnig til við að forða berjunum frá
ágangi fugla. Þó getur verið gott að lyfta dúknum yfir
hlýjasta hluta dagsins meðan á blómgun stendur til að
leyfa flugunum að vinna sitt verk.
Svart plast, jarðvegsdúkur eða jafnvel trjákurl geta líka
verið gagnleg hjálpartól, sérstaklega þegar ræktað er í
skipulögðum röðum. Það gegnir því hlutverki að halda
hita að rótum, raka í jarðvegi og sniglunum frá og er þá
dúkur sniðinn (eða kurli dreift) í kringum hverja plöntu
fyrir sig.
'
Jarðaberjaplöntur geta fjölgað sér mjög hratt. Það gera
þær með því að skjóta renglum út frá sér ofanjarðar og
myndast nýjar plöntur við enda þeirra. Algengt er að þetta
gerist tvisvar á sumri. Plönturnar skjóta svo rótum þar
sem þær lenda. Því þarf að fjarlægja renglurnar vilji maður
ekki að plönturnar dreifi sér út um allt. Hægt að stýra
fjölguninni með því að klippa plönturnar af renglunum
og færa á góðan stað. Bestu plönturnar eru yfirleitt taldar
vera þær sem vaxa af stystu renglunum. Þegar plönturnar
eru orðnar 4-5 ára fara jarðaberin yfirleitt að minnka. Er
þá tímabært að fjarlægja þær plöntur og leyfa nýjum að
taka við.
Jarðaber gera ekki miklar kröfur til jarðvegs, en kjósa helst súran jarðveg (þola illa
kalk). Gott er að blanda smá lífrænum áburði við moldina áður en plönturnar eru
settar niður. Þó þarf að varast að gefa ekki of mikið, sérstaklega af köfnunarefni,
þannig að plönturnar eyði ekki allri orkunni í blaðvöxt. Þá getur verið gott að gefa
kalíríkan áburð þegar nálgast blómgun, en það ætti að hjálpa plöntunni að einbeita
sér að berjamynduninni. Plöntur sem settar eru niður að vori byrja yfirleitt ekki að
gefa af sér fyrr en ári síðar. Sé ætlunin að setja niður nokkrar plöntur og láta þær
fjölga sér er algengt að taki um 3 ár að koma sér upp myndarlegri ræktun.
Nákvæmlega samsett næring sem
uppfyllir sérstakar þarfir hunda og katta
Þú getur verið viss um að halda hundinum
eða kettinum þínum hraustum með fóðrun
á Hill'sTM Science Plan.TM Sama hverjar þarfirnar
eru.
Nákvæmlega samsett næring
Einstök blanda andoxunarefna
Hágæða hráefni
vets’ no.1 choice™
41
Brúðarsýning Garðheima 2011
Eldur
(
42
Brúðarsýning Garðheima 2011
Ís
43
Brúðarsýning Garðheima 2011
Jörð
(
44
Brúðarsýning Garðheima 2011
Vatn
(
45
Veisluleiga Garðheima
Garðheimar hófu nýlega leigu á ýmsum vörum sem hjálpa
þér að gera veisluna sem glæsilegasta. Um er að ræða gott
úrval af glervöru, blómavasa í öllum stærðum og gerðum,
kertastjaka, potta, lifandi plöntur, silkiplöntur, kyndla,
brúðarboga, kökustand ofl.
Upplýsingar um veisluleiguna er hægt að nálgast í
Garðheimum eða á vefsíðu Garðheima:
www.gardheimar.is.
Þá eru allar fyrirspurnir
velkomnar, t.a.m. ef það
eru einhverjir ákveðnir
hlutir sem áhugi er fyrir
að fá leigða sem ekki eru á
listanum yfir leiguhluti.
Glösin sem
gera góð vín
betri
Rauðvínsglas
Hvítvínsglas
Rauðvín/Hvítvín
Kampavínsglas
55cl.
37cl.
40cl.
20cl.
1.295
1.195
1.195
1.095
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
46
F Y R I R H R E I N N A L E I RTA U
VILTU VINNA GJAFAKÖRFU?
UMHVERFISSJÓÐURINN
Heilsa ehf óskar eftir umsóknum um Umhverfisstyrk Ecover
og Heilsu. Styrkurinn mun í ár vera að upphæð 300.000 kr.
Valið verður verkefni sem mun miða að bættri umhverfisvitund,
t.d. þróun námsefnis, rannsókna á vatnasvæðum eða strandlengju
til að sporna við óæskilegri umgengni s.s. frárennsli eða öðrum
mengandi þáttum, hreinsun ákveðins landsvæðis, endurvinnslu
úrgangs, gerð námsefnis í umhverfisvernd eða eitthvað annað
verkefni sem klárlega mun nýtast til verndar íslenskri náttúru.
Umsóknarfrestur er til 17. apríl næstkomandi, umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á
www.heilsa.is
LUKKULEIKURINN
Taktu þátt í
lukkuleiknum í apríl:
• Keyptu eina eða fleiri Ecover vöru í apríl
• Heftaðu kassakvittunina við lukkumiðann
• Settu miðann í Ecover kassann sem á að vera
staðsettur í versluninni
4. maí drögum við úr innsendum miðum 10 stórar
gjafakörfur með ECOVER vörum og 20 minni gjafakörfur.
Styrkurinn verður afhentur í fyrsta sinn 30.apríl 2011, en
gert er ráð fyrir að veitt verði úr sjóðnum árlega í kringum
dag umhverfisins (25. apríl).
47
Fermingarsýning
Garðheima 2011
Fermingardagurinn er stór dagur í lífi
fermingarbarna og eru þau mörg hver
með sterkar hugmyndir um hvernig þau
vilja skreyta veisluna sína. Í Garðheimum
er að finna mikið af hugmyndum og
litasamsetningum og ættu því allir að
finna eitthvað við sitt hæfi.
48
49
50
"
"
51
Gott í garðinn
Nauðsynlegt fyrir stoðkerfi plantnanna.
Eykur kynþroskan í plöntum.
Aukið þraðkþol.
Eykur rótarvöst.
Inniheldur öll helstu næringar og snefilefni.
Nauðsynlegt við ljóstillífun.
Aukið frostþol.
Góð mótsstaða gegn þurrki.
www.aburdur.is

Documents pareils

PRIX MITSUBISHI.numbers - Le Nouveau Catalogue Audiovisuel

PRIX MITSUBISHI.numbers - Le Nouveau Catalogue Audiovisuel MITSUBISHI EW270U WXGA 2.600 LUMENS DLP MITSUBISHI WXGA 3.000 LUMENS MITSUBISHI WXGA 3.000 LUMENS EW331U-ST MITSUBISHI EX200U MITSUBISHI EX220 XGA 2.500 LUMENS DLP MITSUBISIHI EX240U XGA 2.500 LUME...

Plus en détail